https://soundcloud.com/wolf_master/jolajolajol/s-d2PNV
Þegar börnin skó í glugga setja skaltu vit'að nálgast jólajólajól
Er húsbóndinn angar eins og skata máttu vit'að nálgast jólajólajól
Þegar rökkrið ríkir og vor dagur er hvað stystur nálgast jólajólajól
Þegar frostið níðir þig og nístir skaltu vit'að nálgast jólajólajól, jólajólajól
::Gleðileg jó-hól::
Jó-hól
Þessa heiðnu hátíð ljóss og myrkurs er vér höldum heitir jólajólajól
Henni fögnum til að minnast þess að aftur birtir eftir jólajólajól
Því að skrattans myrkrið nagar sálartetur oss í norðr'um jólajólajól
Af þeim sökum allt um kring upp lýsum löngu löngu fyrir jólajólajól, jólajólajól
::Gleðileg jó-hól::
Jó-hól
[bells]
::Gleðileg jó-hól::
Ganga sögur um afkomendur trölla sem að fagna með oss jólajólajól
Koma niðr'af fjöllum til að ræna byggðir landsins kringum jólajólajól
Þrettán synir Leppalúð'og Grýlu þar hvar frægastir um jólajólajól
Birtingarmynd fátæks fólks í sultarnauð að bjarga sér um jólajólajól, jólajólajól
::Gleðileg jó-hól::
Jó-hól
Jóla-jóla-jóla-jóla-jóla-jóla-jóla
Fögnum saman jóla-jóla-jóla-jóla-jóla
Jóla-jóla-jóla-jóla-jóla-jóla-jóla
Fögnum saman jóla-jóla-jóla-jóla-jóla
Ahhhhh, jahhhhh, jahhhhh, jahhhhh
Ahhhhh, jahhhhh, jahhhhh, jah-jah-jah-já
::Gleðileg jó-hól::
Gleðileg jól elskurnar mínar